[UPPSELT] Námskeið fyrir sjúkraþjálfara: Ósamhverfa í hálshreyfingum og skekkja á höfuðkúpu hjá ungbörnum

Uppselt er á námskeið Æfingastöðvarinnar fyrir sjúkraþjálfara undir heitinu Ósamhverfa í hálshreyfingum og skekkja á höfuðkúpu hjá ungbörnum -skoðun-mat-meðferð. Námskeiðið fer fram fimmtudaginn 2. maí, frá kl.13:30-16:30 í húsnæði Æfingastöðvarinnar við Háaleitisbraut 13.  

Námskeiðið er einungis ætlað sjúkraþjálfurum og fer skráning fram í vefverslun SLF. Hámarksfjöldi þátttakenda miðast við 20 manns [UPPSELT]. Námskeiðsgjald er 22.000 kr.

Skráning hér 

 

Á námskeiðinu verður farið yfir orsakir ósamhverfu, klínískar leiðbeiningar, fyrirbyggjandi aðgerðir, skoðun, mat og meðferð.  Námskeiðið skiptist í fræðilegan hluta (2 klst.) og verklegan hluta (1 klst.).  Umsjón er í höndum sjúkraþjálfara Æfingastöðvarinnar sem sinna ungabörnum sem eru með ósamhverfu í hálshreyfingum. Allar frekari upplýsingar um meðferð og þjónustu má finna hér.

Umsjón:

Guðrún Ágústa Brandsdóttir sjúkraþjálfari, Rósa Guðsteinsdóttir sjúkraþjálfari og Kolbrún Kristínardóttir sjúkraþjálfari sjá um kennslu í fræðilega hluta námskeiðsins.  Í verklegum hluta verða einnig Jóna Guðný Arthúrsdóttir sjúkraþjálfari og Guðbjörg Eggertsdóttir sjúkraþjálfari.  

 

Námskeiðsgjöld og greiðsluskilmálar:

Námskeiðgjald er 22.000 kr. Vinsamlegast athugið að endurgreiðsla fæst einungis ef tekst að fylla í plássið af biðlista.  

Nánari upplýsingar veitir Kolbrún Kristínardóttir yfirsjúkraþjálfari Æfingastöðvarinnar í netfang: kolla@slf.is

 

Vinsamlegast athugið að á viðburðinum eru teknar myndir og myndbönd sem notuð eru í markaðsstarfi SLF og Æfingastöðvarinnar. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar í netfang kristindagmar@slf.is