ALLIR MEÐ, Æfingastöðin og ÍR standa að þessu öfluga námskeiði sem er sérstaklega ætlað börnum og ungmennum með hreyfihömlun. Markmiðið er að kynna fjölbreyttar íþróttir í öruggu og hvetjandi umhverfi með góðum búnaði og fyrirmyndum úr afreksíþróttum.

Þjálfarar námskeiðsins eru afreksfólk og raunverulegar fyrirmyndir:
Arna Sigríður Albertsdóttir – handahjólreiðar og skíði
Hákon Atli Bjarkason – landsliðsmaður í borðtennis
Kjalar Þór Jóhannsson – körfuboltaþjálfari

Námskeiðið býður m.a. upp á:
Körfubolta og aðrar boltaíþróttir
Badminton og borðtennis
Frjálsar og hjólastólafærni
Prófun á íþróttahjólastólum og frame running hjólum

Aldursskipting:
10 ára og yngri: kl. 9:00–12:00
11–18 ára: kl. 13:00–16:00

Engin krafa um fyrri þátttöku í íþróttum – bara opinn hug og löngun til að prófa.

Þetta er líka frábær kynning á Paralympics íþróttum og hvernig hægt er að nálgast hreyfingu á eigin forsendum.

Takmarkað pláss – tryggðu þátttöku tímanlega!