PEERS® námskeið vorið 2023 - félagsfærniþjálfun fyrir unglinga

PEERS er 16 vikna gagnreynt félagsfærninámskeið fyrir unglinga (fædd 2008-2010) sem vilja og hafa áhuga á að læra nýjar leiðir til að eignast og viðhalda vinum.

 

Námskeiðslýsing:

PEERS hugmyndafræðin er bandarísk að uppruna og er nú kennd í 35 löndum. Í hverjum tíma er
unglingunum kennd færni í mismunandi félagslegum aðstæðum og þeim gefst tækifæri til að æfa þá færni
með jafnöldrum. Foreldrar og unglinga mæta í vikulega aðskilda tíma. Foreldrum er kennt að hjálpa
unglingunum að eignast vini og viðhalda vináttunni, með því að aðstoða þá við heimaverkefni og
leiðbeina þeim í samskiptum.
Námskeiðið getur hentað unglingum með einhverfu, ADHD, kvíða, þunglyndi eða aðra félagslega
erfiðleika.

 

Markmið:
Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig hægt er að:
• eiga viðeigandi samskipti
• eiga rafræn samskipti
• hefja og yfirgefa samræður
• standa að vel heppnuðum hittingi vina
• sýna góðan liðsanda
• takast á við ágreining
• breyta slæmri ímynd
• takast á við kjaftasögur og slúður
• takast á við höfnun, stríðni og einelti

 

Staðsetning:
Æfingastöðin, Háaleitisbraut 13
Tímasetning og gjald (með fyrirvara um breytingar):
Foreldra og unglingatímarnir eru vikulega kl. 14:30-16:00 í alls 16 skipti.
Námskeiðiskostnaður er 15.000 kr. fyrir barn.


Skráning og frekari upplýsingar veitir:
Gunnhildur Jakobsdóttir iðjuþjálfi (gunnhildur@slf.is