Ráðstefna Æfingastöðvarinnar: Að styðjast við dýr í starfi með fólki [UPPBÓKAÐ]

Ráðstefnan Að styðjast við dýr í starfi með fólki fer fram sunnudaginn 30. október frá kl. 9-16 í Reykjadal í Mosfellsbæ. Ráðstefnan er ætluð þeim sem vilja fræðast um kosti þess að styðjast við dýr í starfi. Hér er um að ræða einstakt tækifæri fyrir áhugasama til að koma saman og kynnast betur þessari gerð nálgunar og koma á tengslum við fólk sem vinnur með dýr í starfi sínu. Sömu helgi fer einnig fram viðurkennt skapgerðarmat, dagana 28. og 29. október, þar sem kannað er hvort hundur hafi þá skapgerðareiginleika sem henta í starfi með fólki. Um er að ræða samstarfsverkefni Æfingastöðvarinnar og Dyrebar Omsorg sem er norsk stofnun sem sérhæfir sig í rannsóknum og starfi tengdu íhlutun með aðstoð dýra. Nánari upplýsingar um skapgerðarmat má nálgast hér.
 
Íhlutun með aðstoð dýra hefur á síðastliðnum áratugum fest sig í sessi víða um heim enda hafa rannsóknir sýnt fram á gagnsemi hennar. Margar starfstéttir nýta sér þess nálgun og má þar helst nefna iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, kennara, talmeinafræðinga, tannlækna, þroska-þjálfa hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa. Nærvera dýrsins og þátttaka hefur sýnt hafa jákvæð áhrif á líðan og þátttöku. Um er að ræða eins dags ráðstefnu með fjölbreyttum og áhugaverðum erindum þar sem fagfólk mun koma og segja frá hvernig það hefur stuðst við hunda og hesta í starfi sínu. Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Line Sandstedt frá Noregi. Line starfar hjá International Center for Anthrozoology (IcofA) sem hefur verið leiðandi m.a. í kennslu, þjálfun skipulagðrar íhlutunar með aðstoð dýra í Noregi og víðar. Auk þess sinnir ICofA kennslu og þjálfun, skapgerðarmats og úttekt á dýrum sem ætluð eru til að starfa með fólki.
 
Ráðstefnan er haldin af Æfingastöðinni sem er helsta endurhæfingastofnun landsins fyrir börn og er hlutverk hennar að efla börn og ungmenni til almennrar þátttöku með það að marki að bæta lífsgæði þeirra. Á Æfingastöðinni starfa teymi sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa og hefur í tæp 18 ár verið starfrækt íhlutun þar með aðstoð dýra.
 
Ráðstefnudagskrá má finna á heimasíðu Æfingarstöðvarinnar.