Sækja um! Reykjadalur sumarið 2023 í Mosfellsdal og Skagafirði

Opnað hefur verið fyrir umsóknir í sumardvöl Reykjadals í Mosfellsdal og Skagafirði 2023. 

Reykjadalur eru sumarbúðir í Mosfellsdal og Skagafirði fyrir fötluð börn og ungmenni. Gleði, jákvæðni og ævintýri lýsa starfseminni í Reykjadal vel. Þar er haft að leiðarljósi að ekkert sé ómögulegt og ævintýrin látin gerast. Árlega koma um 250 einstaklingar í Reykjadal á aldrinum 8-21 árs. Við leggjum áherslu á að hver og einn einstaklingur njóti sín á sínum forsendum. Vináttan er mikilvægur þáttur í starfseminni. Lögð er áhersla á að börnin geti eignast vini og séu fremst á meðal jafningja. Í Reykjadal starfar kraftmikið og hugmyndaríkt starfsfólk sem er tilbúið að taka þátt í að gera dvölina ógleymanlega.

Sækið um sumardvöl í Reykjadal hér fyrir 15. febrúar 2023.