Sjúkraþjálfari - fjölbreytt starf á Æfingastöðinni

Æfingastöðin auglýsir tvær stöður sjúkraþjálfara lausar til umsóknar.

Um er að ræða tvær 100% stöður (eða eftir samkomulagi). Önnur staðan er afleysingstaða frá ágúst 2024 – júní 2025.

Æfingastöðin er miðstöð þjónustu og þekkingar í hæfingu og endurhæfingu barna og ungmenna sem vegna skerðingar af líkamlegum, vitrænum eða félagslegum toga eiga í erfiðleikum með þátttöku í athöfnum daglegs lífs. Þar starfa sjúkraþjálfarar og iðjuþjálfar með það að marki að efla þátttöku skjólstæðinga sinna heima fyrir, í skólanum og úti í samfélaginu og þannig ýta undir bætt lífsgæði þeirra. Nálgunin er skjólstæðings- og fjölskyldumiðuð með áherslu á tækifæri í stað takmarkana.

Árlega nýta um 1400 börn og fjölskyldur þeirra sér fjölbreytta þjónustu Æfingastöðvarinnar.

Æfingastöðin er til húsa við Háaleitisbraut 13 í Reykjavík auk þess að útbú er starfrækt í Hafnarfirði þar sem boðið er upp á iðjuþjálfun.

Við viljum ráða öfluga sjúkraþjálfara sem hafa brennandi áhuga á fjölbreyttu starfi með börnum og fjölskyldum þeirra, þátttöku í stefnumótun og nýsköpun í starfi. Við hvetjum sjúkraþjálfara með reynslu jafnt sem nýútskrifaða til að sækja um.

Æfingastöðin er fjölskylduvænn vinnustaður og er vinnuvika starfsfólks í fullu starfi 36 klst.  

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Mat á færni og fjölbreyttar íhlutunarleiðir
  • Skráning og skýrslugerð
  • Þátttaka í teymisvinnu og fagþróun

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem sjúkraþjálfari frá Embætti landlæknis
  • Hæfni í mannlegum samskiptum og jákvætt viðhorf 
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum       
  • Íslenskukunnátta áskilin

 

Frekari upplýsingar

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi BHM og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs og nýjum stofnanasamningi SLF við þjálfara Æfingastöðvarinnar.

Umsóknarfrestur er til og með 20.maí.

Umsóknir berist til kolla@slf.is

Nánari upplýsingar veitir

Kolbrún Kristínardóttir, yfirsjúkraþjálfari 
kolla@slf.is  
8636380