Skrifað undir í Menntasetrinu við Lækinn

Fremri röð frá vinstri: Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Vilmundur Gíslason fr…
Fremri röð frá vinstri: Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra og Vilmundur Gíslason framkvæmdastjóri Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra
Efri röð frá vinstri: Ágúst Bjarni Garðarson formaður bæjarráðs í Hafnarfirði, Hörður Sigurðsson formaður Styrktarfélags lamaðra og fatlaðra, Margrét Vala Marteinsdóttir forstöðukona Reykjadals og Rósa Guðbjartsdóttir bæjarstjóri Hafnarfjarðar

Ásmundur Einar Daðason félags- og barnamálaráðherra skrifaði í gær undir samning við Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra um ævintýranámskeið fyrir börn og ungmenni með fötlun og/eða sérþarfir í Menntasetrinu við Lækinn í Hafnarfirði.

Einnig var skrifað undir samning um Ævintýrabúðir Reykjadals í Háholti í Skagafirði fyrir börn með ADHD og/eða einhverfu og aðrar skildar raskanir.

Margrét Vala Marteinsdóttir forstöðukona í Reykjadal segir það mjög mikilvægt að geta boðið fötluðum börnum upp á fjölbreytta valkosti á sumrin. „Ófatlaðir jafnaldrar þeirra hafa oft um mörg sumarnámskeið að velja. Nú sem aldrei fyrr er rík þörf fyrir tilbreytingu og að rjúfa félagslega einangrun fatlaðra barna í valdeflandi umhverfi.“

Hún segir það einnig skipta máli að fjölga valkostum á landsbyggðinni. „Ævintýrabúðirnar í Háholti hafa verið frábær viðbót. Skagafjörður hefur upp á svo margt að bjóða, þar hefur okkur liðið vel og við höfum upplifað ný og spennandi ævintýri.“

Alls hafa fjögur ný verkefni orðið að veruleika vegna ríflega 100 milljóna króna styrks frá félagsmálaráðuneytinu sem veittur er sem viðbrögð við félagslegum áhrifum Covid-19. Fyrr í sumar skrifuðu félags- og barnamálaráðherra og Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra undir samning um Sumarfrí fjölskyldunnar í Vík í Mýrdal og á Húsavík og Sumarfrí fyrir fullorðið fatlað fólk á Hótel Heklu.

Alls taka um 500 einstaklingar þátt í sumarverkefnum Reykjadals. Mikil ánægja hefur verið með þessa viðbót við starfsemina og svo sannarlega mikil þörf á. Í fyrsta sinn síðan árið 2014 tókst að veita öllum þeim sem voru á biðlista undanfarin ár pláss í Reykjadal.

Mörg af þessum börnum og fjölskyldur þeirra hafa verið félagslega einangruð í faraldrinum. „Það veitir foreldrum vellíðan og öryggi að vita að barnið sitt fái þann stuðning sem það þarf og hlakki til að koma til okkar,“ segir Margrét Vala.