Við kynnum til leiks glænýtt Reykjadals buff

Við kynnum til leiks glænýtt Reykjadals buff en hönnunin á því var gerð í vetrardvöl í febrúar í samvinnu við unglingahópinn okkar. Hugmyndin var að sýna hversu litríkur staður Reykjadalur er. Allir sem tóku þátt í buff-smiðjuhópnum lögðu höfuðið í bleyti en að lokum var þessi útkoma sem við sjáum hér  valin.

 

 Höfuð – og hálsklútarnir henta fyrir ýmis tilefni bæði á haus og á hálsinn, og fyrir alla aldurshópa, en þau eru hönnuð með það í huga að þau sé hægt að para saman við hvaða flíkur sem er. Ákveðið var að buffin yrðu seld að þessu sinni á lítinn kostnað til styrktar sumarbúðunum í Reykjadal. Til stendur á þessu misseri að gera umfangsmiklar framkvæmdir á útisvæði sumarbúðanna, svo það verði meðal annars aðgengilegra og er ætlunin að festa kaup á nýjum leiktækjum en mikið er lagt upp úr útiveru í sumardvölum. Mikið fer í slíka vinna og tekur það mögulega nokkur misseri að fá draumalóðina okkar. Styrkir einstaklinga hafa gert okkur kleift að skapa þá umgjörð sem Reykjadalur starfar við í dag og erum við þakklát fyrir þann velhug sem samfélagið í heild sýnir staðnum ár eftir ár.


Hægt er að næla sér í eintak hér í netverslun.

 

Með því að kaupa Reykjadals hálsklútinn styrkir þú stuðið í Reykjadal!