Ráðstefna Æfingastöðvarinnar

Að styðjast við dýr í starfi með fólki

Ráðstefna Æfingastöðvarinnar verður haldin í Reykjadal í Mosfellsbæ sunnudaginn 30. október 2022. Í Reykjadal hafa sumarbúðir fatlaðra barna verið starfræktar um árabil. Sjá nánar staðsetningu Reykjadals.

VINSAMLEGAST ATHUGIÐ AÐ UPPBÓKAÐ ER Á RÁÐSTEFNUNA.

Ráðstefnugjald: 12.000 kr
Hádegismatur og kaffi er innifalið í ráðstefnuverði.  
Ráðstefnudagskrá má finna hér.
 
 

Ráðstefnan er ætluð þeim sem vilja fræðast um kosti þess að styðjast við dýr í starfi. Hér er um að ræða einstakt tækifæri fyrir áhugasama til að koma saman og kynnast betur þessari gerð nálgunar og koma á tengslum við fólk sem vinnur með dýr í starfi sínu.

Íhlutun með aðstoð dýra hefur á síðastliðnum áratugum fest sig í sessi víða um heim enda hafa rannsóknir sýnt fram á gagnsemi hennar. Margar starfstéttir nýta sér þess nálgun og má þar helst nefna iðjuþjálfa, sjúkraþjálfara, kennara, talmeinafræðinga, tannlækna, þroskaþjálfa hjúkrunarfræðinga, sálfræðinga og félagsráðgjafa. Nærvera dýrsins og þátttaka hefur sýnt hafa jákvæð áhrif á líðan og þátttöku.

Um er að ræða eins dags ráðstefnu með fjölbreyttum og áhugaverðum erindum þar sem fagfólk mun koma og segja frá hvernig það hefur stuðst við hunda og hesta í starfi sínu.

Aðalfyrirlesari ráðstefnunnar er Line Sandstedt frá Noregi. Line starfar hjá International Center for Anthrozoology (IcofA) sem hefur verið leiðandi m.a. í kennslu, þjálfun skipulagðrar íhlutunar með aðstoð dýra í Noregi og víðar. Auk þess sinnir ICofA kennslu og þjálfun, skapgerðarmats og úttekt á dýrum sem ætluð eru til að starfa með fólki.

Ráðstefnan er haldin af Æfingastöðinni sem er helsta endurhæfingastofnun landsins fyrir börn og er hlutverk hennar að efla börn og ungmenni til almennrar þátttöku með það að marki að bæta lífsgæði þeirra. Á Æfingastöðinni starfa teymi sjúkraþjálfara og iðjuþjálfa og hefur í tæp 18 ár verið starfrækt íhlutun þar með aðstoð dýra. Styrktaraðili er Royal Canin á Íslandi.

 

Umfjöllunarefni og nöfn fyrirlesara á ráðstefnunni:

  • Íhlutun með aðstoð dýra - Line Sandstedt
  • Aðferðir við þjálfun dýra - Hilde Ulvatne Marthinsen
  • Sjúkraþjálfun á hestbaki - Guðbjörg Eggertsdóttir
  • Hundur í starfi með iðjuþjálfa - Gunnhildur Jakobsdóttir
  • Hundur í starfi með kennara- Line Sandstedt
  • Hundur í starfi með tannlækni - Sigurður Rúnar Sæmundsson