Nemendur í sjúkraþjálfun gerðu æfingamyndbönd fyrir Hvolpa, Ormaskopp og Íþróttahóp

Skjáskot úr myndbandi Íþróttahóps
Skjáskot úr myndbandi Íþróttahóps

Nemendur í sjúkraþjálfun sem áttu að koma í verknám á Æfingastöðinni í vor en komu ekki vegna samkomubanns gerðu myndbönd sem sýnir hvernig þau myndu leggja upp hóptíma. Nemendurnir gerðu myndband fyrir Hvolpa, Ormaskopp og Íþróttahóp. Við erum svo heppin að fá að deila þessum myndböndum.

Fyrst er myndband sem Bergþór Snær og Anna Sóley gerðu fyrir Íþróttahóp. Íþróttahópur er hópþjálfun á Æfingastöðinni fyrir börn í fyrstu bekkjum grunnskóla (6-8 ára) sem þurfa hvatningu, aukið sjálfstraust og betri líkamlega og félagslega færni til að taka þátt í leik og tómstundum með jafnöldrum.

 

 

Næst eru það Atli og Nanna sem gerðu æfingar fyrir Ormaskoppshópinn. Ormaskopp er hópþjálfun fyrir börn á leikskólaaldri (4-6 ára) sem þurfa hvatningu, aukið sjálfstraust og betri líkamlega færni til að taka þátt í hreyfileikjum með jafnöldrum.

 

 

 

 

Loks gerðu Aníta Sif og Sólveig Lóa æfingamyndband fyrir Hvolpahóp. Hvolpar er færniþjálfun í hóp fyrir börn á leikskólaaldri (3-6 ára) með frávik í hreyfiþroska.